Halldór Kiljan Laxness - Heimsljós

"Fegursta blómið, það lifir í huldum stað, fæstir fá nokkurntíma að sjá það, mörgum sést yfir það, nokkrir kunna ekki skil á gildi þess, þeir sem uppgötva það munu ekki sjá annað blóm síðan. Allan daginn hugsar maður um það. Þegar maður sefur dreymir mann það. Maður deyr með nafn þess á vörum."

Elymus alopex
Ættkvísl   Elymus
     
Nafn   alopex
     
Höfundur   B. Salomon
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Kjarrhveiti
     
Ætt   Poaceae (Grasaætt)
     
Samheiti   Elymus caninus L.; Triticum caninum Linnaeus, Sp. Pl. 1: 86. 1753; Agr-opyron caninum (Linnaeus) P. Beauvois; Braconotia canina (Linnaeus) Fourreau; B. elymoides Godron, nom. illeg. superfl.; Elytrigia canina (Linnaeus) Drobow; Goulardia canina (Linnaeus) Husnot; Roegneria canina (Linnaeus) Nevski; Zeia canina (Linnaeus) Lunell.
     
Lífsform   Fjölær grastegund
     
Kjörlendi   Vex í graslendi og oft innan um hrís og runna. Algengast í innsveitum Suður-Þingeyjarsýslu
     
Blómlitur  
     
Blómgunartími   Júlí-ág.
     
Hæð   0.40 - 0.9 m
     
 
Kjarrhveiti
Vaxtarlag   Lausþýfð grastegund, stráin upprétt, 40-90 sm á hæð.
     
Lýsing   Blöðin ljósgræn, þunn, mjúk og hærð beggja vegna en þó sérstaklega á efra borði, 12?20 × 0.5?1.1 sm. Blaðslíður hárlaus, engin slíðurhimna. Axið þétt, ljósgrænt - fjólublámengað, með 10-20 smáöxum, oft lotið eða aðeins lotið, 6-12 sm á lengd. Smáöxin oftast þríblóma, það efsta ófrjótt. Axagnir 10-20 mm langar, lensulaga oddmjóar með langri týtu, gis- og stutthærðar, með þrem til sex upphleyptum taugum. Neðri blómögn með týtu sem er töluvert lengri en ögnin. Blómgast í júlí. 2n = 28. LÍK/LÍKAR: Bláhveiti. Kjarrhveitið þekkist á axögnunum og á mun lengri týtum.
     
Jarðvegur   Vex best í frjóum, fremur rökum jarðvegi í sól eða hálfskgugga.
     
Heimildir   9, HKr, http://www.efloras.org/florataxon.aspx?flora_id=2&taxon_id=242320267
     
Reynsla  
     
     
Útbreiðsla   Sjaldgæft. Vex í innsveitum á Norður- og Austurlandi frá Skagafirði austur á Fljótsdalshérað. Utan þessa svæðis eru aðeins stakir fundir. Önnur náttúruleg heimkynni t.d.: SV Asía, Evrópa.
     
Kjarrhveiti
Kjarrhveiti
Kjarrhveiti
Kjarrhveiti
Kjarrhveiti
Kjarrhveiti
Kjarrhveiti
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is