Þuríður Guðmundsdóttir - Rætur Ég geng um skrúðgarða borgar
og blómin horfa á mig
litríkum framandi augum
og ilmur þeirra er alltaf nýr
Í fjarska situr fölblá gleymmérei
á fötum lítils barns
Því blágresi, holtasóley og steinbrjótur
voru blóm bernsku minnar
Og rætur þeirra
verða alltaf mínar
|
Cerastium fontanum ssp. vulgare
Ættkvísl |
|
Cerastium |
|
|
|
Nafn |
|
fontanum |
|
|
|
Höfundur |
|
Baumg. |
|
|
|
Ssp./var |
|
ssp. vulgare |
|
|
|
Höfundur undirteg. |
|
(Hartm.) Greut. & Burd., Willdenowia 12: 37. 1982. |
|
|
|
Yrki form |
|
|
|
|
|
Höf. |
|
|
|
|
|
Íslenskt nafn |
|
Vegarfi |
|
|
|
Ætt |
|
Caryophyllaceae (Hjartagrasaætt) |
|
|
|
Samheiti |
|
|
|
|
|
Lífsform |
|
Tvíær - fjölær jurt |
|
|
|
Kjörlendi |
|
Vex í mólendi, flögum, vegköntum og við bæi og útihús. Algeng um land allt. |
|
|
|
Blómlitur |
|
Hvítur |
|
|
|
Blómgunartími |
|
Maí-júní |
|
|
|
Hæð |
|
0.05-0.35 m |
|
|
|
|
|
|
Vaxtarlag |
|
Fjölær jurt með blómlausum blaðsprotum. Margir blöðóttir, stönglar af sama jarðstöngli, uppsveigðir eða jarðlægir, þétthærðir, 5-35 sm á hæð. |
|
|
|
Lýsing |
|
Blöðin gagnstæð, langegglaga - aflöng, snubbótt, 10-20 mm á lengd með löngum gisnum hárum, stuttstilkuð neðan til en stilklaus ofan til á stilkum. Efstu háblöðin himnurend.
Blómin endastæð, hvít, 5-8 mm í þvermál. Krónublöðin sýld, álíka löng eða aðeins lengri en bikarblöðin. Bikarblöð hærð, odddregin og himnurend. Fræflar 10 og ein fræva sem er oftast með 5 stílum. Aldinið tannhýði, með 10 tönnum. Hýðið meira en helmingi lengra en bikarinn, jafngilt og sveigist aðeins upp á við. Blómgast í maí-júní.
LÍK/LÍKAR: Músareyra & hnoðafræhyrna. Vegarfinn er ekki eins loðinn og músareyra og krónublöðin eru aðeins lengri en bikarblöðin. Hnoðafræhyrna (Cerastium glomeratum) er einær jurt og fremur sjaldgæf sem minnir á vegarfa eða músareyra. Blómin fleiri í þéttari kvíslskúfum og ber gljáandi aldin með sérkennilega gullgulum blæ, blöðin breiðari, egglaga eða sporbaugótt, broddydd.
Algengur á láglendi. Tvær deilitegundir eru hér á landi, Cerastium fontanum subsp. fontanum sem er innlend og algeng og Cerastium fontanum subsp. vulgare (Hartm.) Greuter & Burdet sem talin er aðflutt með manninum og vex einkum í grennd mannabústaða. |
|
|
|
Jarðvegur |
|
|
|
|
|
Heimildir |
|
1,2,3,9, HKr |
|
|
|
Reynsla |
|
|
|
|
|
|
|
|
Útbreiðsla |
|
Einkum í byggð.
Önnur náttúruleg heimkynni: Aðaltegundin er meira og minna í öllum heimsálfum. |
|
|
|
|
|