Sigfús Daðason - Vængjasláttur
Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.

Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!

Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.

Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.

Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.



Callitriche hamulata
Ættkvísl   Callitriche
     
Nafn   hamulata
     
Höfundur   Kütz. ex W.D.J. Koch, Syn. Fl. Germ. Helv., ed. 1 : 246, (1836)
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Síkjabrúða (Síkjastjarna)
     
Ætt   Callitrichaceaev (Vatnsbrúðuætt)
     
Samheiti   Callitriche palustris subsp. hamulata (Koch) Schinz & Thell. in Schinz & R. Keller Callitriche brutia subsp. hamulata (Kütz. ex W.D.J.Koch) O.Bolòs & Vigo
     
Lífsform   Fjölær
     
Kjörlendi   Vex í lygnum pollum, lækjum og tjörnum, oft alveg á kafi.
     
Blómlitur  
     
Blómgunartími   Júní-ág.
     
Hæð   0.15-0.50 m
     
 
Síkjabrúða (Síkjastjarna)
Vaxtarlag   Smágerð jurt sem vex í vatni eða í mjög rökum jarðvegi við vatn. Í vatni er hún meira eða minna kaflæg og stundum alveg í straumvatni. Stönglar þráðmjóir, 15-50 sm á hæð/lengd.
     
Lýsing   Blöðin eru af tveim gerðum. Kafblöðin gagnstæð, striklaga og örmjó, 1-2,5 sm löng, 0,3-0,5 mm á breidd, með tvær hárfínar klólaga tennur í endann. Flotblöðin 5-8 mm löng, frambreið, spaðalaga eða öfugegglaga, snubbótt og mynda hvirfingar á greinendunum. Blómin stök í blaðöxlunum, blómhlífarlaus (enginn bikar né króna). Sambýli, karlblóm með einum fræfli og kvenblóm með einni frævu. Aldinið svargrænt, nær kringlótt, um 1,5 mm í þvermál. Blómgast í júní-júlí. 2n = 38 LÍK/LÍKAR: Vorbrúða. Síkjabrúða auðþekkt á klónni á enda kafblaða.
     
Jarðvegur  
     
Heimildir   1,3,9
     
Reynsla  
     
     
Útbreiðsla   Algeng um land allt að undanskildu hálendinu norðan og sunnan jökla. Önnur náttúrleg heimkynni t.d.: Norðurhvel, N Evrópa, Ástralía
     
Síkjabrúða (Síkjastjarna)
Síkjabrúða (Síkjastjarna)
Síkjabrúða (Síkjastjarna)
Síkjabrúða (Síkjastjarna)
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is