Í morgunsárið - Ragna Sigurðardóttir Í morgunsárið greiðir hún sér með trékambi. Hægt með föstum
strokum. Vöxturinn er svo mikill að hana kitlar í svörðinn. Hún
strýkur hendinni yfir gróðurinn. Finnur blóm springa út undir
fingurgómunum. Sóleyjar og baldursbrár. Hún leggur kambinn frá
sér. Fer út í garðinn og krýpur. Kippir upp kartöflugrösum. Rótar og
grefur með berum höndum. Djúpt ofan í moldinni finnur hún sætar og
safaríkar appelsínur.
|
Ættkvísl |
|
Blechnum |
|
|
|
Nafn |
|
spicant |
|
|
|
Höfundur |
|
(L.) Roth, Ann. Bot. (Usteri) 10 : 56 (1794) |
|
|
|
Ssp./var |
|
|
|
|
|
Höfundur undirteg. |
|
|
|
|
|
Yrki form |
|
|
|
|
|
Höf. |
|
|
|
|
|
Íslenskt nafn |
|
Skollakambur |
|
|
|
Ætt |
|
Blechnaceae (Skollakambsætt) |
|
|
|
Samheiti |
|
Acrostichum spicant (L.) Willd.; Blechnum boreale Sw.; Lomaria spicant (L.) Desv.; Osmunda borealis Salisb.; |
|
|
|
Lífsform |
|
Fjölær burkni |
|
|
|
Kjörlendi |
|
Vex í urðum og hlíðum, snjódældum og gilskorningum einkum neðan til í fjöllum. Vex yfirleitt aðeins í snjódældum þar sem snjóþungt er á láglendi. |
|
|
|
Blómlitur |
|
|
|
|
|
Blómgunartími |
|
Gróbær síðla hausts (gró ná ekki alltaf að þroskast) |
|
|
|
Hæð |
|
0.15 - 0.35 m |
|
|
|
|
|
|
Vaxtarlag |
|
Stuttir, stinnir, uppréttir jarðstönglar með dökku hreistri og fremur fáum gulgrænum, sígrænum blöðum, gróbærum og grólausum, 15-35 sm á hæð, þar af er stilkur blöðkunnar aðeins 1/5 - 1/4 hæðar, nema á gróbæru blöðunum þar sem hann getur verið helmingur hæðarinnar. Breiðist hægt út með jarðrenglunum. |
|
|
|
Lýsing |
|
Blöðin á stuttum, hreistruðum stilkum og vaxa upp af sterklegum jarðstönglum. Grólausu blöðin fjaðurskipt eða djúpflipótt, með 30-45 heilrendum, ofurlítið odddregnum bleðlum hvorum megin. Bleðlarnir 1-2 sm á lengd en 2-4 mm á breidd, lengstir um miðju blöðkunnar. Gróbæru blöðin frábrugðin, eins og tvíhliða kambur, uppréttari og með mjórri flipum (um 1 mm). Eftir endilöngum flipum gróbæru blaðanna liggja tveir striklaga gróblettir, sem vaxa að lokum saman og þekja allt neðra borð flipanna. Gróblöð ná þó ekki alltaf að þroskast. 2 n = 68.
LÍK/LÍKAR: Skjaldburkni. Skjaldburkninn er auðþekktur frá skollakambi á tenntum smáblöðum.
Tunguskollakambur (Blechnum spicant var. fallax) er afbrigði af skollakambi sem vex á jarðhitasvæðum. Hann er mun smærri og bæði gróbæru og grólausu blöðin eru mjög stilkstutt og næstum eins, aðeins 2-10 sm á hæð. Afar sjaldséður, en hefur t.d. fundist við Deildartunguhver. |
|
|
|
Jarðvegur |
|
Líkar best við fremur frjóan, léttsúran jarðveg með jöfnu rakastigi og góðri framræslu í sól-hálfskugga. |
|
|
|
Heimildir |
|
1,2,3,9, HKr, http://www.efloras.org/florataxon.aspx?flora_id=1&taxon_id=200004244 |
|
|
|
Reynsla |
|
The Hard Fern generally occurs only in snowbeds in districts with heavy snowfalls in the lowland.
The only exception is a variety (B. spicant var. fallax) growing in thermal areas. These plants are smaller, the sterile and fertile leaves both of same type. |
|
|
|
|
|
|
Útbreiðsla |
|
Fremur sjaldgæfur og finnst varla á suðurlandi en er hér og þar í öðrum landsfjórðungum.
Önnur náttúruleg heimkynni t.d.: Evrópa, Asía, Japan og N Ameríka. |
|
|
|
|
|