Halldór Laxness

"Blóm eru ódauðleg... þú klippir þau í haust og þau vaxa aftur í vor, - einhversstaðar."

Aconitum carmichaelii
Ættkvísl   Aconitum
     
Nafn   carmichaelii
     
Höfundur   Debeaux.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Glanshjálmur
     
Ætt   Sóleyjarætt (Ranunculaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól, hálfskuggi.
     
Blómlitur   Ljós-purpura til næstum hvít utan, djúp-purpura innan.
     
Blómgunartími   Ágúst.
     
Hæð   60-100 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Glanshjálmur
Vaxtarlag   Rætur með hnúðum. Stönglar uppréttir, oft mjög hár, allt að 2 m. Laufin meira eða minna egglaga, skert að 2/3 að miðstrengnum í 3-5 flipa, dökk græn ofan, fölgræn á neðra borði, leðurkennd, hárlaus eða með hrokkin hár é æðastrengjunum, flipar lítð eitt tenntir eða flipóttir.
     
Lýsing   Blómskipunin þéttur toppur, greinar uppréttar, aldinleggur stuttur með hrokkið hár. Blómin djúp-purpura innan, ljós-purpurlit eða næstum hvít utan, hjálmurinn hvolflaga-sívalur, með lítið eitt hrokkið hár utan. Fræhýði venjulega 3, fræin þakin glærum, þverstæðum skífum eða fellingum.
     
Heimkynni   M & V Kína, N Ameríka
     
Jarðvegur   Frjór, rakahelsinn.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   3
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Skipting, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í fjölæringabeð.
     
Reynsla   Sæmilega harðgerð planta, er til í ræktun hérlendis. Í Lystigarðinum er til ein planta undir nafninum A. carmenchaelii 'Arendsii', sem sáð var til 1998 og gróðursett í beð 2006, þrífst vel.
     
Yrki og undirteg.   Yrki 'Arendsii' er með himinblá blóm, 'Latecrop' er með bl´blóm og blómstrar að haustinu.
     
Útbreiðsla  
     
Glanshjálmur
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is