Málsháttur
Oft vex laukur af litlu.
Achillea tomentosa
Ættkvísl   Achillea
     
Nafn   tomentosa
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Gullhumall
     
Ætt   Körfublómaætt (Asteraceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Skærgulur.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   15-40 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Gullhumall
Vaxtarlag   Fjölær jurt, lóhærð til silkihærð. Stönglar allt að 40 sm háir, ógreindir, uppréttir. Lauf næstum sívöl, , grunnlauf allt að 8 sm, með legg, tví-fjaðurskipt, flipar bandlaga, stöngullauf legglaus, ytirleitt fjöðruð.
     
Lýsing   Körfur 15 eða fleiri í hálfsveip, blómskipunarleggur 2-5 mm, reifar 3 mm í þvermál, nærreifar 2,5-3 mm, jaðar fölbrúnn, geislablóm allt að 2 mm, skærgul.
     
Heimkynni   SV Evrópa til M Ítalíu.
     
Jarðvegur   Léttur, framræstur, magur, þurr.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   3
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Skipting, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í beð, í breiður, í steinhæðir, í kanta.
     
Reynsla   Harðgerð og þrífst mjög vel norðanlands en miður fyrir sunnan heiðar og vill deyja þar út eftir nokkur ár. Ekki í Lystigarðinum 2015.
     
Yrki og undirteg.   A. tomentosa 'Maynard's Gold' með skærgulum blómum, A. tomentosa 'Aurea' dvergvaxið yrki, allt að 15 sm, þétt, myndar breiður með mjög ullhærð lauf og djúpgul blóm. --- Yrkin eru fremur viðkvæm og oft skammlíf í ræktun bæði norðanlands og sunnan.
     
Útbreiðsla  
     
Gullhumall
Gullhumall
Gullhumall
Gullhumall
Gullhumall
Gullhumall
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is