Jón Helgason - Úr ljóðinu Áfangar
Séð hef ég skrautleg suðræn blóm
sólvermd í hlýjum garði;
áburð og ljós og aðra virkt
enginn til þeirra sparði;
mér var þó löngum meir í hug
melgrasskúfurinn harði,
runninn upp þar sem Kaldakvísl
kemur úr Vonarskarði.
Aster dumosus
Ættkvísl   Aster
     
Nafn   dumosus
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Lundastjarna
     
Ætt   Asteraceae
     
Samheiti  
     
Lífsform   fjölær
     
Kjörlendi   sól
     
Blómlitur   fölpurpurableik eða hvít/gulur hvirfill
     
Blómgunartími   síðsumars
     
Hæð   0,7-0,8m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Stinnir uppréttir, greindir blómstönglar. Þarf stuðning er líður á sumarið, skríður lítillega, stönglar smádúnhærðir.
     
Lýsing   Neðri laufin (grunnlaufin) allt að 5 sm x 3 mm (stöku sinnum allt að 11 sm löng og 8 mm breið) bandlaga eða band - lensulaga, ydd, heilrend eða því sem næst, oft aftursveigð, hrjúf á efra borði en slétt og hárlaus á því neðra. Stöngullauf áþekk en mun minni. Körfur 1,2 - 1,8 sm í þvermál, fjölmargar í breiðum skúf, á 2 - 15 sm leggjum með fjölmörg lítil bandlaga geld stoðblöð. Reifar 4 - 7 mm, topplaga, reifablöðin í allmörgum röðum mjög mismunandi, hvert með vel afmarkaðan öfuglensulaga grænan blett, ydd í endann ystu ekki aðlæg, breytast smám saman í geld stoðblöð . Tungur 15 - 25 (stundum allt að 30 ) 5 - 7 x allt að 1,2 mm, fölpurpurableik eða stundum eða stundum hvít, stundum aftursveigð. Hvirfilkrónur 3,5 - 6 mm. Svifkrans 4 - 5 mm. Blómgast síðsumars.
     
Heimkynni   SA N Ameríka
     
Jarðvegur   léttur, frjór, framræstur, rakaheldinn
     
Sjúkdómar  
     
Harka   3, H2
     
Heimildir   1,2
     
Fjölgun   skipting að vori, sáning
     
Notkun/nytjar   baka til í fjölær beð
     
Reynsla   Hefur reynst vel í garðinum og lifir svo árum skiptir (í L3 frá 1995 og sum yrkin eldri)
     
Yrki og undirteg.   Nokkur yrki í ræktun í garðinum og flest minni og þéttari. Yrkin eru mjög frábrugðin villta foreldrinu og hafa e.t.v. orðið til með blöndum (tegunda) sjá líka A. novi ? belgii. Þrífast best í sendnum jarðvegi. Helstu yrki eru: ´Lady in Blue´ (Perry 1955) dökkblá, hálffyllt, blómgast síðsumars, 30 ? 35 sm á hæð. ´Kristine´ (Einf. 1980) brúnhvít, stór blóm, hálfofkrýnd, blómgast um mitt sumar, 30 sm há. ´Blue Bird´ blá, blómgast síðsumars. Talið að yfir 60 yrki af Lundastjörnu séu í ræktun víðs vegar um heiminn!
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is