Þuríður Guðmundsdóttir - Rætur
Ég geng um skrúðgarða borgar
og blómin horfa á mig
litríkum framandi augum
og ilmur þeirra er alltaf nýr

Í fjarska situr fölblá gleymmérei
á fötum lítils barns

Því blágresi, holtasóley og steinbrjótur
voru blóm bernsku minnar

Og rætur þeirra
verða alltaf mínar

Plantago major 'Rubrifolia'
Ættkvísl   Plantago
     
Nafn   major
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Rubrifolia'
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Græðisúra
     
Ætt   Græðisúruætt (Plantaginaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Græn-brúnleit.
     
Blómgunartími   Ágúst-september.
     
Hæð   5-15 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Sjá aðaltegund, nema laufin þekja moldina, eru stór og brúnrauð.
     
Lýsing   Sjá aðaltegundina.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, framræstur, sendinn.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Skipting, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, í ker, sem þekjuplanta.
     
Reynsla   'Rubrifolia' er yrki af græðisúru sem er íslensk tegund og ekki æskileg garðplanta, getur orðið að illgresi í görðum þar sem hún sáir sér mikið.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is