Málsháttur
Eigi fellur tré við hið fyrsta högg.
Plantago nivalis
Ættkvísl   Plantago
     
Nafn   nivalis
     
Höfundur   Boiss.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Grátunga
     
Ætt   Græðisúruætt (Plantaginaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Grænleit - brúnpurpuralit.
     
Blómgunartími   Ágúst-september.
     
Hæð   5-15 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Grátunga
Vaxtarlag   Fjölær jurt. Grunnlauf í hvirfingu, allt að 1 sm, bandlensulaga, mjókka við grunninn, broddydd, hvítsilkihærð bæði ofan og neðan.
     
Lýsing   Blómstilkar sívalir, um það bil jafnlangir og laufin, öx hnöttótt allt að 1 sm löng. Stoðblöð með áberandi kjöl, dálítið tvíflipótt, jaðrar brúnir. Bikarblöð ekki samvaxin, himnukennd, með brúna jaðra. Króna allt að 2 mm, græn, frjóhnappar gulir. Fræhýði hnöttótt, tvíhólfa, fræ hnöttótt, hrukkótt.
     
Heimkynni   S Spánn (fjöll).
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, framræstur, sendinn.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Skipting, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, í beðkanta, í ker.
     
Reynsla   Hefur verið lengi í ræktun að Reykjum og lifað þar úti flesta vetur óvarin (HS). Hefur verið um tíma í Lystigarðinum, heldur sér við með sáningu, er ekki lengur þar 2015.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Grátunga
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is