Halldór Kiljan Laxness , Bráðum kemur betri tíð.
Bráðum kemur betri tíð með blóm í haga,
sæta langa sumardaga.

Erigeron grandiflorus
Ættkvísl   Erigeron
     
Nafn   grandiflorus
     
Höfundur   J.D. Hooker
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Glæsikobbi
     
Ætt   Körfublómaætt (Asteraceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Ljósfjólublár, hvítur/gulur hvirfill.
     
Blómgunartími   Síðsumars-haust.
     
Hæð   20-30 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Glæsikobbi
Vaxtarlag   Langlífur fjölæringur. Blómstönglar loðnir (dúnhærðir), allt að 30 sm, útafliggjandi neðst, uppréttir í endann.
     
Lýsing   Lauf hærð, þau neðri öfuglensulaga, meira eða minna stilkuð, efri lauf smá, flest mjólensulaga, heilrend, kirtilhærð á jöðrunum. Körfur stakar, reifablöð þétt ullhærð, oftast aftursveigð í oddinn. Tungukrýnd blóm 110-150, ljósfjólublá eða hvítleit, 7-15 × 1-2,5 mm. Svifkrans tvöfaldur með 20-25 innri þornhár, þau ytri mjóar himnuagnir ógreinilegar. Aldin/hnotin hærð, 2-tauga.
     
Heimkynni   V N-Ameríka - N Kanada, USSR
     
Jarðvegur   Léttur, framræstur, meðalrakur
     
Sjúkdómar  
     
Harka   H2
     
Heimildir   2
     
Fjölgun   Skipting, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í fjölæringabeð, í steinhæðir.
     
Reynsla   Mjög harðgerð planta, flott og auðræktuð. Hefur verið samfellt í ræktun í garðinum frá 1984 (K1-N12 - G04).
     
Yrki og undirteg.   Erigeron grandiflorus ssp. arcticus hefur verið lýst í Kanada er minni og enn harðgerðari arktísk tegund.
     
Útbreiðsla  
     
Glæsikobbi
Glæsikobbi
Glæsikobbi
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is