Halldór Laxness

"Blóm eru ódauðleg... þú klippir þau í haust og þau vaxa aftur í vor, - einhversstaðar."

Eryngium x oliverianum
Ættkvísl   Eryngium
     
Nafn   x oliverianum
     
Höfundur   Delaroche
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Roðasveipþyrnir
     
Ætt   Sveipjurtaætt (Apiaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Skærblár.
     
Blómgunartími   Síðsumars.
     
Hæð   -100 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Fjölær jurt, allt að 100 sm há.
     
Lýsing   Grunnlauf dökkgræn með áberandi æðum, hjartalaga til egglaga, því sem næst 3-flipótt, þyrnar vita fram. Blaðstilkar langir. Stöngullauf 3-flipótt til handskipt, fliparnir aftur flipóttir. Jaðrar með þyrna sem vita fram á við. Reifablöð 10-15, allt að 7 sm, bandlaga, purpuralit, þyrnótt, þyrnar vita fram. Körfur allt að 4 sm, sívalar- egglaga. Blóm skærblá.
     
Heimkynni   Garðauppruni. Blendingur.
     
Jarðvegur   Léttur, frjór, framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   = 1, 2
     
Fjölgun   Sáning, græðlingar, rótargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, í beð með fjölærum jurtum.
     
Reynsla   Óvíst hverjir foreldrarnir eru, gætu verið E. alpinum og E. giganteum. Ágæt reynsla, í B4 frá 1991.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is