Sigfús Daðason - Vængjasláttur
Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.

Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!

Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.

Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.

Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.



Dianthus giganteus
Ættkvísl   Dianthus
     
Nafn   giganteus
     
Höfundur   Urv.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Risadrottning
     
Ætt   Hjartagrasaætt (Caryophyllaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   dökkpurpura
     
Blómgunartími   Ágúst - september.
     
Hæð   -100 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Kröftugur fjölær jurt, allt að 100 sm há.
     
Lýsing   Minnir á D. cruentus, en er stærri og er frábrugðin henna hvað stoðblöð og utanbikarflipa varðar, þ.e. með mjög stuttan odd. Blómin purpurableik en ekki fagurrauð.
     
Heimkynni   Balkanskagi.
     
Jarðvegur   Léttur, sendinn, framræstur, kalkríkur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   = 1, 2
     
Fjölgun   Sáning, græðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í beð með öðrum fjölærum plöntum.
     
Reynsla   Lifir yfirleitt fremur stutt. Er af og til í uppeldi.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is