Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Dianthus armeria
Ættkvísl   Dianthus
     
Nafn   armeria
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Rósadrottning
     
Ætt   Hjartagrasaætt (Caryophyllaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Tvíær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Skærbleikur.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   30-40 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Hærð jurt, ein- eða tvíær sem verður allt að 40 sm. Grunnlauf í blaðhvirfingum, mjó-aflöng, snubbótt.
     
Lýsing   Blómin smá, legglaus eða því sem næst í þéttum blómhnoðum, umkrýndum af bandlaga stoðblöðum sem minna á laufblöðin. Stoðblöðin jafnlöng krónublöðum eða ögn lengri. Bikar 1,5-2 sm, mjókkar ofan við miðju. Utanbikarflipar 2, lensulaga-sýllaga, jafnlangir bikarnum. Krónutungan um 5 mm, mjóegglaga, tennt og með skegg, skærbleik með fölari doppur, nöglin snjóhvít.
     
Heimkynni   Víðast í Evrópu (sjaldgæf nyrst), V Asía.
     
Jarðvegur   Léttur, sendinn, framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   = 1,2
     
Fjölgun   Sáning, græðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, í kanta, í ker.
     
Reynsla  
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is