Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Dianthus anatolicus
Ættkvísl   Dianthus
     
Nafn   anatolicus
     
Höfundur   Boiss.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Breiðudrottning
     
Ætt   Hjartagrasaætt (Caryophyllaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Hvítur.
     
Blómgunartími   Júlí-september.
     
Hæð   10-35 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Fjölær jurt sem myndar breiður.
     
Lýsing   Lauf allt að 4,5 sm, bandlaga, langodddregin. Blómin stök eða 2-3 saman, blómleggir > 5 mm. Bikar 8-11 x 2-3 mm, samandreginn efst, tennur 2 mm oft með lítinn odd. Utanbikar flipar oftast 6, mjóegglaga, mjókka snögglega með himnukennda jaðra, 1/3-1/2 lengd bikarsins. Krónutungan 2,5-3,5 mm, bandlaga-aflöng, heilrend, ekki með skegg, hvít.
     
Heimkynni   Tyrkland.
     
Jarðvegur   Léttur, sendinn, framræstur, kalkríkur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   = 1, 2
     
Fjölgun   Skipting, sáning, græðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, í ker, í kanta.
     
Reynsla   Hefur reynst vel í garðinum. Fyrirtaks steinhæðaplanta.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is