Sigfús Daðason - Vængjasláttur
Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.

Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!

Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.

Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.

Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.



Mertensia primuloides
Ættkvísl   Mertensia
     
Nafn   primuloides
     
Höfundur   (Decaisne) Clarke
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Fjallablálilja
     
Ætt   Munablómaætt (Boraginaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Djúpblár.
     
Blómgunartími   Júlí.
     
Hæð   15 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Fjallablálilja
Vaxtarlag   Stönglar allt að 15 sm, þornhærðir.
     
Lýsing   Grunnlauf allt að 7 x 1 sm, lensulaga til aflöng eða band-lensulaga, ydd eða snubbótt. Blómleggir að 3,5 sm. Bikar allt að 4 mm, flipar hærðir. Króna djúpblá, til hvít eða gul. Krónupípa um það bil 1,3 sm, krónuflipar um það bil 5 mm. Ginleppar ógreinilegir. Fræ(hnetur) allt að 3 mm.
     
Heimkynni   Afganista, Pakistan, V Kína.
     
Jarðvegur   Fremur rakur, meðalfrjór.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   1,2
     
Fjölgun   Skipting, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í fjölæringabeð, í steinhæðir.
     
Reynsla   Í E3 frá 1988 og hefur þrifist þar vel.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Fjallablálilja
Fjallablálilja
Fjallablálilja
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is