Vorið góða, grænt og hlýtt (Heinrich Heine, þýðing) Vorið góða, grænt og hlýtt,
græðir fjör um dalinn,
allt er nú sem orðið nýtt,
ærnar, kýr og smalinn.
Kveður í runni, kvakar í mó
kvikur þrastasöngur;
eins mig fýsir alltaf þó:
aftur að fara í göngur.
|
Ættkvísl |
|
Primula |
|
|
|
Nafn |
|
suffrutescens |
|
|
|
Höfundur |
|
A. Gray |
|
|
|
Ssp./var |
|
|
|
|
|
Höfundur undirteg. |
|
|
|
|
|
Yrki form |
|
|
|
|
|
Höf. |
|
|
|
|
|
Íslenskt nafn |
|
Runnalykill |
|
|
|
Ætt |
|
Maríulykilsætt (Primulaceae). |
|
|
|
Samheiti |
|
|
|
|
|
Lífsform |
|
Fjölær, trjákennd planta. |
|
|
|
Kjörlendi |
|
Sól-hálfskuggi. |
|
|
|
Blómlitur |
|
Bleikur, rósrauður, rauður eða purpura. |
|
|
|
Blómgunartími |
|
Síðsumars. |
|
|
|
Hæð |
|
10-15 sm |
|
|
|
Vaxtarhraði |
|
|
|
|
|
|
|
|
Vaxtarlag |
|
Opnar blaðhvirfingar, trékennd planta og skriðul, dauð lauf hanga lengi á plöntunum. |
|
|
|
Lýsing |
|
Blaðhvirfingar með legglausa límkirtla. Lauf þykk, 1,5 - 4 sm x 5-10 mm, fleyglaga til spaðalaga, bogadregin í oddinn, tennt ofan til en mjókka smám saman í vængjaðan legg, dökkgræn á efra borði en gulleit á því neðra.
Blómstönglar allt að 5 sm við blómgun en lengjast í 12 sm við aldinþroska, grannir beinir með 1-9 blóm í sveip. Stoðblöð 3-6 mm, mjó. Blóm mislegglöng, leggir 5-15 mm langir. Krónan allt að 2 sm í þvermál, flöt skífa, bleik, rósrauð, rauð eða purpuralit með gult auga. Krónupípa gul, um það bil 2 x lengri bikarinn.
|
|
|
|
Heimkynni |
|
SV Bandaríkin. |
|
|
|
Jarðvegur |
|
Mjög frjór, rakheldinn, framræstur. |
|
|
|
Sjúkdómar |
|
Engir. |
|
|
|
Harka |
|
|
|
|
|
Heimildir |
|
= 2, |
|
|
|
Fjölgun |
|
Skipting, sáning. |
|
|
|
Notkun/nytjar |
|
Skýldir staðir norðan og austan við hús. |
|
|
|
Reynsla |
|
Rækta í hálfskugga í vel framræstri safnhaugamold. Þarf vetrarskýli til að verjast vætu að vetri. Reynsla stutt, lifði stutt. |
|
|
|
Yrki og undirteg. |
|
|
|
|
|
Útbreiðsla |
|
|
|
|
|
|
|