Þuríður Guðmundsdóttir - Rætur
Ég geng um skrúðgarða borgar
og blómin horfa á mig
litríkum framandi augum
og ilmur þeirra er alltaf nýr

Í fjarska situr fölblá gleymmérei
á fötum lítils barns

Því blágresi, holtasóley og steinbrjótur
voru blóm bernsku minnar

Og rætur þeirra
verða alltaf mínar

Saxifraga hieracifolia
Ættkvísl   Saxifraga
     
Nafn   hieracifolia
     
Höfundur   Willd.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Fífilsteinbrjótur
     
Ætt   Steinbrjótsætt (Saxifragaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Grænleitur.
     
Blómgunartími   Sumar.
     
Hæð   30-40 (-50) sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Lauffellandi fjölæringur, uppréttir blómstönglar, þykk blöð í stofnhvirfingum.
     
Lýsing   Blaðkan 2-6 x 1-3 sm, egglaga-oddbaugótt, mjókkar í stuttan vængjaðan legg, heilrend eða með snubbóttar tennur, rauðbrún, ekki kirtilhærð. Blómstöngull allt að 50 sm, +/- lauflaus, endar í mjóum, þéttum skúf, stoðblöð oft mjög áberandi. Krónublöð 1,5-3 mm um það bil jafnlöng bikarblöðunum en mjórri, græn með purpurarauðum jaðri. Frjóþræðir beinir.
     
Heimkynni   Pólhverf, Karpatafjöll, Altaifjöll.
     
Jarðvegur   Jafn raki, grýttur, meðalfrjór.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   2
     
Fjölgun   Skipting, sáning.
     
Notkun/nytjar   Þarf jafnan góða vökvun yfir sumarið.
     
Reynsla   Í D02 frá 1986, þrífst vel.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is