Málsháttur
Mjór er mikils vísir.
Syringa × prestoniae 'Elinor'
Ættkvísl   Syringa
     
Nafn   × prestoniae
     
Höfundur   McKelv.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Elinor'
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Fagursýrena
     
Ætt   Smjörviðarætt (Oleaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Skærfjólublár innan og föl-lilla utan.
     
Blómgunartími   Júlí.
     
Hæð   2-3 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Fagursýrena
Vaxtarlag   Uppréttur, tiltölulega gisinn runni.
     
Lýsing   Lauffellandi runni, 2-3 m hár, kúlulaga í vextinum. Blómin stór, skærfjólublá innan og föl-lilla utan, áberandi, knúbbarnir með purpura slikju. Blómin í uppréttum klösum. Klasar allt að 20 sm langir. &
     
Heimkynni   Garðauppruni (S. komarowii ssp. reflexa × S. villosa).
     
Jarðvegur   Mjög rakur, en ekki blautur, meðalfrjór, vel framræst.
     
Sjúkdómar   Runninn hefur mikið mótstöðuafl gegna sjúkdómum og meindýrum.
     
Harka   4
     
Heimildir   1, http://www.friendsofhefarm.ca, http://personal.inet.fi, http://mosaid.org
     
Fjölgun   Yrkjunum verður aðeins fjölgað með græðlingum, sumargræðlingum, erfiðara er að nota vetrargræðlinga. Ágræðsla er líka möguleg. Plöntur upp af fræi eru aðeins notaðar sem ágræðslutré/runni. 'Elinor' er á eigin rót.
     
Notkun/nytjar   Hægt að nota sem lítið einstofna tré, mjög langlíft. Stórir runnar sem þurfa gott rými til að ná góðum þroska. Stakir eða í þyrpingum, í óklippt limgerði.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein, aðkeypt planta sem var gróðursett í beð 1981. Þrífst vel, hefur að vísu kalið ögn sum árin framan af, blómstrar árlega.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Fagursýrena
Fagursýrena
Fagursýrena
Fagursýrena
Fagursýrena
Fagursýrena
Fagursýrena
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is