Sigfús Daðason - Vængjasláttur
Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.

Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!

Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.

Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.

Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.



Saxifraga nathorstii
Ættkvísl   Saxifraga
     
Nafn   nathorstii
     
Höfundur   (Dusen) Hayek
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Grænlandssteinbrjótur
     
Ætt   Steinbrjótsætt (Saxifragaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær, sígræn jurt.
     
Kjörlendi   Sól, hálfskuggi.
     
Blómlitur   Bleikur.
     
Blómgunartími   Júlí.
     
Hæð   5-10 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Gisun breiðumyndandi planta, ekki með renglur en með stöngulsprotum frá stöngulstofni. S. nathorstii vex aðeins á NA Grænlandi. Líklega blendingur milli vetrarblóms (S. oppositifolia) og gullsteinbrjóts (S. aizoides), sem er millistig milli þessara tegunda hvað útlit snertir, hvenær hann blómstrar og með tilliti til umhverfisþátta.
     
Lýsing   Laufin (eru ekki sköruð) gagnstæð, þau efstu stakstæð, laufleggur er enginn, laufblaðkan öfuglensulaga til oddbaugótt, ekki með flipa, 5-9 mm, kjötkennd, jaðrar heilrendir, kögaðir með 1(-3) kalkkirtla, snubbótt í oddinn, hárlaus á efra borði. Blómin stakstæð, stundum í 2-blóma skúf, ekki með stoðblöð, 3-4 sm, hárlaus. Bikarblöð upprétt, egglaga, randhærð, hárlaus á efra borði. Krónublöð laxbleik eða lifrauð, stundum rauð eða appelsínugul, sjaldan gul, stundum með fjólubláa slikju, ekki doppótt, öfugegglaga til öfuglensulaga, 12-15 mm, lengri en bikarblöðin, eggleg að 1/4 yfirsætin.
     
Heimkynni   NA Grænland.
     
Jarðvegur   Lífrænn, rakaheldinn, þurrara að vetri.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   6, www.efloras.org/florataxon.aspx?flora-id=1&taxon-id=250092005
     
Fjölgun   Skipting eftir blómgun, sáning.
     
Notkun/nytjar   Vex í mýrum á heimskautasvæðum, rakri túndru, meðfram ám, við uppþornaðar tjarnir.
     
Reynsla   Harðgerð planta, hefur oftast reynst vel hérlendis.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is