Sigfús Daðason - Vængjasláttur
Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.

Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!

Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.

Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.

Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.



Rudbeckia laciniata
Ættkvísl   Rudbeckia
     
Nafn   laciniata
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Flipahattur
     
Ætt   Körfublómaætt (Asteraceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól, skjól.
     
Blómlitur   Gulur/gulgrænn kollur .
     
Blómgunartími   September.
     
Hæð   80-120 sm (-300 sm erlendis).
     
Vaxtarhraði  
     
 
Flipahattur
Vaxtarlag   Fjölær jurt, allt að 300 sm há, yfirleitt hárlaus og bláleit.
     
Lýsing   Lauf allt að 10 sm, fjaðurskipt eða þrískipt, stinnhærð eða langhærð á neðra borði, með legg, efri laufin legglaus. Krónan stök, blómbotninn hvolflaga til keilulaga. Reifablöð límkennd-dúnhærð við oddinn. Geislablóm allt að 6 sm, gul, hvirfingablóm gul-græn eða grágræn. Svifihárakrans með stutta geisla.
     
Heimkynni   N Ameríka
     
Jarðvegur   Frjór, framræstur, rakaheldinn.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   3
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Sáning, skipting.
     
Notkun/nytjar   í beð með fjölærum jurtum.
     
Reynsla   Lítt reynd enn sem komið er.
     
Yrki og undirteg.   Nokkur yrki í ræktun USA. T.d. 'Golden Glow', 'Goldquelle', 'Soleil d'Or'ofl.
     
Útbreiðsla  
     
Flipahattur
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is