Þuríður Guðmundsdóttir - Rætur
Ég geng um skrúðgarða borgar
og blómin horfa á mig
litríkum framandi augum
og ilmur þeirra er alltaf nýr

Í fjarska situr fölblá gleymmérei
á fötum lítils barns

Því blágresi, holtasóley og steinbrjótur
voru blóm bernsku minnar

Og rætur þeirra
verða alltaf mínar

Filipendula multijuga
Ættkvísl   Filipendula
     
Nafn   multijuga
     
Höfundur   Maxim.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Fjallamjaðjurt
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær, jurt.
     
Kjörlendi   Sól, hálfskuggi.
     
Blómlitur   Bleikur (yfirleitt).
     
Blómgunartími   Lok júlí-ágúst.
     
Hæð   - 100 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Fjallamjaðjurt
Vaxtarlag   Fjölær jurt, allt að 100 sm há.
     
Lýsing   Axlablöðin himnukennd, stundum tennt. Endaflipinn breiður, bogadreginn, allt að 10 sm í þvermál, 5-7 handskipt, næstum hjartalaga við grunninn, tennt. Blóm venjulega bleik að 5 mm í þvermál, í margblóma endastæðum, hárlausum hálfsveipum. Krónublöð egglaga til kringlótt. Frævur 4-5. Aldin aflöng, hárlaus.
     
Heimkynni   Japan.
     
Jarðvegur   Frjór, djúpur, rakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Skipting, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í beð með fjölærum plöntum.
     
Reynsla   Hefur reynst vel í Lystigarðinum.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Fjallamjaðjurt
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is