Málsháttur
Engin er rós án þyrna.
Fritillaria pyrenaica
Ættkvísl   Fritillaria
     
Nafn   pyrenaica
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Þrastarlilja
     
Ætt   Liljuætt (Liliaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær, laukjurt.
     
Kjörlendi   Sól, skjól.
     
Blómlitur   Dökkpurpura með brúnni eða svartri slikju.
     
Blómgunartími   Maí-júní.
     
Hæð   15-30 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Þrastarlilja
Vaxtarlag   Laukar kúlulaga, allt að 3 sm í þvermál. Stönglar 15-30 sm háir.
     
Lýsing   Lauf 4,5-11 x 0,5-1 sm, 7-10, stakstæð, lensulaga til band-lensulaga. Blómin stök eða einstöku sinnum 2 saman, breið-bjöllulaga, blómhlífarblöðin 25-35 mm, aftursveigð í oddinn, öll dökkpurpualit með svartri eða brúnni slikju, mjög tígulmynstruð á ytra borði, grænmenguð á innra borði með gula slikju innan og með brúnt tígulmynstur neðan til. Hunangskirtlar neðst á bjöllunni, þríhyrndir til egglensulaga. Stíll 8-9 mm, grannur, sléttur, 3-greindur, greinar 2-4 mm. Fræhýði ekki með vængi.
     
Heimkynni   S Frakkland, NV Spánn
     
Jarðvegur   Léttur, framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Skipting, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, í beðkanta.
     
Reynsla   Hefur reynst vel í Lystigarðinum.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Þrastarlilja
Þrastarlilja
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is