Málsháttur
Mjór er mikils vísir.
Abies sachalinensis
Ættkvísl   Abies
     
Nafn   sachalinensis
     
Höfundur   (Fr. Schmidt) Mast.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Eyjaþinur
     
Ætt   Þallarætt (Pinaceae)
     
Samheiti   A. veitchii v. sachalinensis Schmidt
     
Lífsform   Sígrænt tré.
     
Kjörlendi   Sól, hálfskuggi.
     
Blómlitur  
     
Blómgunartími  
     
Hæð   5-15 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Eyjaþinur
Vaxtarlag   Beinvaxið tré, keilulaga króna. Börkur sléttur, ljósgrár.
     
Lýsing   Tré allt að 40 m há í heimkynnum sínum. Börkur er sléttur og gráhvítur. Ársprotarnir dálítið rákóttir, gráir, hærðir í grópunum. Brum smá, næstum kúlulaga, bláleit, kvoðug. Barrnálar líkar og á A. veitchii en aðeins u.þ.b. 1,5 mm breiðar, en allt að 4 sm langar, glansandi ofan, skærgrænar, að neðan eru þær með 2 fremur mjóar loftaugarendur hvor úr 7-8 röðum af loftaugum, bogadregnar eða framjaðraðar í oddinn. Könglar sívalir, 7- 8 sm langar u.þ.b. 3 sm breiðir; ólífugrænir ungir, fullþroska eru þeir svart-brúnir til blásvartir. Köngulhreistur heilrend, þétthærð á bakhlið, hreisturblöðkur standa út úr könglinum og sveigjast aftur á við.
     
Heimkynni   N Japan, Sakalíneyja, Kúríleyjar.
     
Jarðvegur   Léttur, framræstur, frjór.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   1,7,9
     
Fjölgun   Sáning (forkæla fræ í um mánuð), vetrargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í beð, þyrpingar, jólatré.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er ein planta sem sáð var 1985. Hún kól af og til framan af, en ekkert síðan 2001. Auk þess eru til tvær plöntur sem sáð var til 1994. Þær kala ekkert en vaxa hægt.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla   Þrífst best í röku loftslagi.
     
Eyjaþinur
Eyjaþinur
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is