Málsháttur
Lengi býr að fyrstu gerð.
Betula pendula 'Tristis'
Ættkvísl   Betula
     
Nafn   pendula
     
Höfundur   Roth.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Tristis'
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Grátbjörk (vörtubirki)
     
Ætt   Bjarkarætt (Betulaceae)
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi tré.
     
Kjörlendi   Full sól eða hálfskuggi.
     
Blómlitur   Grænleitur.
     
Blómgunartími   Vor.
     
Hæð   6-10 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Grátbjörk (vörtubirki)
Vaxtarlag   Lauffellandi tréð sem verður allt að 12 m hátt eða hærra og 4-8 m breitt. Það tekur tréð 20–50 ár að ná þessari stærð. Yrkið ‘Tristis’ er glæsilegt, meðalstórt tré með mjóa krónu með langar, grannar, hangandi smágreinar. Bolurinn hvítur. Laufin egglaga, verða gul að haustinu. Blómin í grönnum brúnum reklum og slúta í miklum boga.
     
Lýsing   Laufin eins og á venjulegu vörtubirki.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Vel framræstur eða rakur jarðvegur, sendinn eða leirkenndur. Sýrustig skiptir ekki máli.
     
Sjúkdómar   Ryðsveppur og blettir á laufi (sveppasýking) geta verið til vandræða erlendis.
     
Harka   2
     
Heimildir   = 1, http://apps.rhs.org.uk
     
Fjölgun   Fjölgað með ágræðslu.
     
Notkun/nytjar   Í þyrpingar, stakstæð, blönduð beð. Norðanundir, austan-, sunnan- eða vestanundir. Á skjólgóðum stað eða áveðurs. Vex við margs konar aðstæður. Þarf litla umhirðu, en snyrtingu ef þurfa þykir.
     
Reynsla   Er ekki í Lystigarðinum 2013. Þrífst þolanlega á allra bestu stöðum í sól og góðu skjóli, hefur verið reynt í nokkrum görðum hérlendis og þrífst bara vel.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Grátbjörk (vörtubirki)
Grátbjörk (vörtubirki)
Grátbjörk (vörtubirki)
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is