Jón Helgason - úr ljóðinu Á Rauðsgili
Hugrökk teygist á háum legg
hvönnin fram yfir gljúfravegg,
dumbrauðu höfði um dægrin ljós
drúpir hin vota engjarós.


Spiraea alba
Ættkvísl   Spiraea
     
Nafn   alba
     
Höfundur   Duroi
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Ljósakvistur
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól og skjól.
     
Blómlitur   Hvítur (sjaldnan bleikur).
     
Blómgunartími   September-október.
     
Hæð   1-1,5 m
     
Vaxtarhraði   Meðalhraður vöxtur.
     
 
Ljósakvistur
Vaxtarlag   Lauffellandi runni, allt að 1,5 m hár. Greinarnar eru uppréttar eða útstæðar, kantaðar, fín ryð-lóhærðar.
     
Lýsing   Lauf 2,5-6,25 sm, aflöng til aflöng-lensulaga, ydd, grófsagtennt, æðastrengir dúnhærðir eða hárlausir á neðra borði. Blómin 8 mm í þvermál, hvít, sjaldan bleik, í laufóttum pýramídalaga-keilulaga skúf, allt að 20, 5 sm löngum (stundum lengri), bikarblöð upprétt, fræflar hvítir. Aldin hnöttótt.
     
Heimkynni   A N-Ameríka.
     
Jarðvegur   Vel framræstur, frjór, meðalrakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Sáning, sumargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í kanta, í beð, í þyrpingar.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til einn gamall runni frá 1981 og tvær plöntur sem sáð var til 2000, allir eru seinir til og eru með knúbba í september-október.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Ljósakvistur
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is