Snorri Hjartarson - Lyng

Gott er að leggjast í lyngið,
sjá lauf glóa, finna kvik
fjaðurmjúk atlot þess, fagna
í fegurð jarðar meðan rauð
og lág sólin lækkar
og lyngbreiðan er ilmgrænt haf
sem ber þig að hljóðri húmströnd
og hylur þig gleymsku.

Muscari pallens
Ættkvísl   Muscari
     
Nafn   pallens
     
Höfundur   Bieb.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Heiðperlulilja
     
Ætt   Liljuætt (Liliaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær laukjurt.
     
Kjörlendi   Sól-hálfskuggi.
     
Blómlitur   hvitur/blár m. fjólubláu ívafi
     
Blómgunartími  
     
Hæð   15-20 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Laukar egglaga, smáir. Lauf allt að 20 sm, jafnlöng eða lengri en blómstöngullinn, bandlaga, ydd verða stór efst.
     
Lýsing   Blómstöngull 15-20 sm, klasinn er stuttur, aflangur, þéttblóma, blómleggir stuttir, blómin álút, eru oddbaugótt, hvít eða blá með fjólubláa slikju, flipar aftursveigðir. Ófrjó blóm smá, hýði hliðflöt, hólf öfughjartalaga.
     
Heimkynni   Kákasus.
     
Jarðvegur   Léttur, frjór moldarjarðvegur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Hliðarlaukar, sáning, laukar lagðir í september á um 8 sm dýpi.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, sem undirgróður, í blómaengi, í þyrpingar.
     
Reynsla   Ekki í Lystigarðinum.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is