Vorið góða, grænt og hlýtt (Heinrich Heine, þýðing)
Vorið góða, grænt og hlýtt,
græðir fjör um dalinn,
allt er nú sem orðið nýtt,
ærnar, kýr og smalinn.

Kveður í runni, kvakar í mó
kvikur þrastasöngur;
eins mig fýsir alltaf þó:
aftur að fara í göngur.
Lonicera alpigena
Ættkvísl   Lonicera
     
Nafn   alpigena
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Fjallatoppur
     
Ætt   Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Runni
     
Kjörlendi   Sól, hálfskuggi
     
Blómlitur   Gulgræn með rauða slikju
     
Blómgunartími   Vor
     
Hæð   0,5 - 1 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Fjallatoppur
Vaxtarlag   Runni allt að 1 m á hæð, fremur grannur og með upprétt vaxtarlag.
     
Lýsing   Runni um 1 m hár, grannur og uppréttur í vextinum, Smágreinar grænar, lítið eitt kirtilhærðar og dúnhærðar. Laufin allt að 10 sm, oddbaugótt til aflöng, langydd dökkgræn og glansandi ofan, ljósari og dúnhærð í fyrstu á neðra borði, randhærð. Blómin gulgræn, með rauða slikju, allt að 1,5 sm, tvö og tvö saman, blómleggir uppréttir, allt að 5 sm, allt að 12,5 mm, með tvær varir, dúnhærð innan, fræflar dúnhærðir neðantil. Berin egglaga-hnöttótt, allt að 13 mm, glansandi dökkrauð.
     
Heimkynni   M & S Evrópa.
     
Jarðvegur   Meðal þurr, fremur frjór
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   Vetrar eða sumargræðlingar, sáning, sveiggræðsla.
     
Notkun/nytjar   Í limgerði, blönduð beð, þyrpingar, sem stakstæður runni.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum eru til allmargar plöntur undir þessu nafni, sem sáð hefur verið frá 1978 til 1983 og gróðursettar í beð 1980 til 1985, allar þrífast vel, kelur lítið eða ekkert. Hefur reynst mjög vel í Lystigarðinum - mun harðgerðari en hörkutalan segir til um.
     
Yrki og undirteg.   Lonicera alpigena 'Macrophylla' laufin stór, hárlaus, smástoðblöð lítil. Blómin hárlaus á ytra borði Lonicera alpigena f. nana (Carr.) Nichols. Dvergvaxinn runni. Lauf með strjál dúnhár á neðra borði, hárin þéttari á æðastrengjunum. Blómin djúprauð.
     
Útbreiðsla  
     
Fjallatoppur
Fjallatoppur
Fjallatoppur
Fjallatoppur
Fjallatoppur
Fjallatoppur
Fjallatoppur
Fjallatoppur
Fjallatoppur
Fjallatoppur
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is