Málsháttur
Lengi býr að fyrstu gerð.
Ribes × pallidum 'Hvid Hollandsk'
Ættkvísl   Ribes
     
Nafn   × pallidum
     
Höfundur   Otto & F. Dietr.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Hvid Hollandsk'
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Rifsber / hvítrifs
     
Ætt   Garðaberjaætt (Grossulariaceae).
     
Samheiti   Ribes spicatum Robson ‘Hvid Hollandsk’ / ‘Vita Hollänska’, Ribes rubrum ‘White Dutch’, ’Vitte Parel’
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól og skjól.
     
Blómlitur   Fölgrænn.
     
Blómgunartími   Snemma vors.
     
Hæð   1-1,5 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Rifsber / hvítrifs
Vaxtarlag   Yrkið kom fram fyrir 1929, uppruni í Hollandi. Þetta er elsta hvíta yrkið sem er þekkt. Lauffellandi runni sem er meira en meðalstór, 1-1,5 m hár og 2-3 m breiður, kröftugur, uppréttur, dálítið útbreiddur, þéttvaxinn, hraustur, myndar mjög mikið af berjum.
     
Lýsing   Laufin eru meðalstór, hálf-hjartalaga til þverstýfð við grunninn. Blómin eru þétt, í hangandi klösum, fáblóma eða með mörg blóm. Bikarpípa er grænleit, skállaga, hárlaus. Bikarflipar breið-snubbóttir, aðskildir, hárlausir, fölgrænir. Berjaklasarnir eru stuttir, meðalþéttir, 8-15 ber í hverjum, klasaleggir í meðallagi að lengd og grófleika. Berin eru gulhvít með milt, súrt bragð, sætara en hjá Rauð hollensk, ekki öll af sömu stærð, meðalstór til lítil, klasarnir meðalstórir. Berholdið er meðalsafaríkt, mildilega hálfsúr, gæðin mikil, fræ meðalmörg. Myndar gnótt af berjum.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Frjór og jafnrakur jarðvegur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   http://www.ars-grin.gov, http://www.bogront.no, http://www.landstolpi.is, http://www.sveplantinfo.se
     
Fjölgun   Græðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í runnabeð. Berin notuð í saft, sultu og hlaup eða fryst.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er ein planta sem kom frá Gróðrarstöðinni Nátthaga 1995. Það vottaði fyrir kali stöku ár í byrjun, en plantan er vöxtugleg 2011 og ber gnótt af berjum árlega. Harðgert á Suðurlandi og gefur ágæta uppskeru í skjóli.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla   AÐRAR UPPLÝSINGAR: Berin eru góð í vín eða að borða beint af runnanum. Vex hóflega hratt. Berin þroskuð í ágúst-september Ribes × pallidum Otto & F. Dietr. (Ribes petraeum × R. spicatum spicatum)
     
Rifsber / hvítrifs
Rifsber / hvítrifs
Rifsber / hvítrifs
Rifsber / hvítrifs
Rifsber / hvítrifs
Rifsber / hvítrifs
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is