Jón Thoroddsen - Barmahlíð

Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!

Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.

Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?

Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali!


Populus suaveolens
Ættkvísl   Populus
     
Nafn   suaveolens
     
Höfundur   Fisch.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Rússaösp
     
Ætt   Víðiætt (Salicaceae).
     
Samheiti   P. maximowiczii Henry
     
Lífsform   Lauffellandi tré.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur  
     
Blómgunartími   Síðla vetrar.
     
Hæð   10-20 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Rússaösp
Vaxtarlag   Tré sem getur orðið allt að 30 m hátt í heimkynnum sínum. Ungar greinar gulbrúnar, sívalar, hærðar ofan við liðina. Brum ydd, brún með ilmandi kvoðu.
     
Lýsing   Lauf 5-12 sm, aflöng-oddbauótt, stuttydd, snögg-odddregin, oft snúin í oddinn, leðurkennd, þykk, bogtennt, mjög fölgræn og hærð neðan, grunn- hjartalaga við grunninn. Laufleggir 1-4 sm. Karlreklar 5-1m sm, reklar með fræi 18-25 sm langir.
     
Heimkynni   NV Kína, N Japan, Kórea, A Síbería.
     
Jarðvegur   Frjór, rakaheldinn.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   3
     
Heimildir   1, 10
     
Fjölgun   Sumar- og vetrargræðlingar, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í þyrpingar, sem stakstætt tré, stóra garða.
     
Reynsla   Hefur reynst nokkuð vel hérlendis og var ræktuð nokkuð hér áður og fyrr en minna eftir því sem leið á 20 öldina. Er til í nokkrum görðum á Akureyri.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Rússaösp
Rússaösp
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is