Málsháttur
Lengi býr að fyrstu gerð.
Meconopsis paniculata
Ættkvísl   Meconopsis
     
Nafn   paniculata
     
Höfundur   (D. Don.) Prain
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Engjagulsól
     
Ætt   Draumsóleyjarætt (Papaveraceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt - skammlíf.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Gulur.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   100-200 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Engjagulsól
Vaxtarlag   Skammlíf, fjölær planta, allt að 200 sm há. Stönglar greinóttir.
     
Lýsing   Grunnlaufin í þéttum hvirfingum, fjaðurflipótt, langhærð til þornhærð, flipar lensulaga, aflöng eða tígullaga, hvassydd til bogadregin í oddinn, flipótt eða heilrend, efri stöngullauf legglaus, greipfætt. Blómin stök á axlastæðum blómleggjum í öxlum efri stöngullaufa og í 2-6 blóma klösum. Krónublöð 4, egglaga til hálfkringlótt, allt að 5 x 5 sm, gul, frjóþræðir fölgulir, frjóhnappar appelsínugulir, fræni 6-12 flipótt, purpura. Aldin oddvala-aflöng, stjarnhærð, opnast með 6-12 topplokum.
     
Heimkynni   A Nepal - NA Assam
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, vel framræstur, hæfilega rakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   8
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Sáning.
     
Notkun/nytjar   Í skrautblómabeð, í steinhæðir.
     
Reynsla   Hefur verið af og til í Lystigarðinum, er skammlíf.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Engjagulsól
Engjagulsól
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is