Málsháttur
Eigi fellur tré við hið fyrsta högg.
Cytisus scoparius
Ættkvísl   Cytisus
     
Nafn   scoparius
     
Höfundur   (L.) Link.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Gullsópur
     
Ætt   Ertublómaætt (Fabaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Uppréttur runni
     
Kjörlendi   Sól og skjól
     
Blómlitur   Sterkgulur
     
Blómgunartími   Síðla vors til snemmsumars
     
Hæð   0,8-1,4 m (-3 m)
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Uppréttur runni, allt að 1,4 m hár. Greinar margar, grannar, grænar, hárlausar eða silkihærðar í fyrstu.
     
Lýsing   Lauf oftast þrífingruð, en þau sem eru á ungum sprotum einfingruð (heil/óskipt), laufin legglaus, smálauf 6-20 × 1,5-9 mm, lítið eitt loðin eða hárlaus, oddbaugótt til öfugegglaga. Blómin sterkgul, um 25 mm, 1 eða 2 í blaðöxlunum, laufleggir 6-10 mm, bikar um 5 mm, hárlaus. Fáni 16-18 mm í þvermál. Belgir 25-40 × 8-10 mm, mjög þéttir í sér, aflangir, með þétt hvít eða brún hár á jöðrunum.
     
Heimkynni   Evrópa að Bretlandi meðtöldu.
     
Jarðvegur   Léttur, vel framræstur, má vera ófrjór, kalkríkur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Sáning, sumargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í stórar steinhæðir, í skýld beðum, gróðusetja t. d. sunnan við hús.
     
Reynsla   Er ekki í ræktun í Lystigarðinum sem stendur en er á óskalista - í meðallagi harðgerður og þarf að rækta á sólríkum stað í góðu skjóli - þarf að vetrarskýli.
     
Yrki og undirteg.   Fjöldi yrkja er í ræktun erlendis taldar vera um 80 alls. Ekki taldar upp hér. Þau eru oftast með mismunandi lit blóm og afar skrautleg í blóma - hugsanlega mætti rækta flest þeirra á allra bestu stöðum.
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is