Þuríður Guðmundsdóttir - Rætur
Ég geng um skrúðgarða borgar
og blómin horfa á mig
litríkum framandi augum
og ilmur þeirra er alltaf nýr

Í fjarska situr fölblá gleymmérei
á fötum lítils barns

Því blágresi, holtasóley og steinbrjótur
voru blóm bernsku minnar

Og rætur þeirra
verða alltaf mínar

Acer glabrum v. douglasii
Ættkvísl   Acer
     
Nafn   glabrum
     
Höfundur   Torr.
     
Ssp./var   v. douglasii
     
Höfundur undirteg.   (Hook.) Wesm.
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Gljáhlynur
     
Ætt   Hlynsætt (Aceraceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Runni - lítið tré
     
Kjörlendi   Sól, hálfskuggi, skjól
     
Blómlitur   Grænleitur
     
Blómgunartími   Síðla vors/snemmsumars
     
Hæð   4 - 6 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Gljáhlynur
Vaxtarlag   Kröftugur runni með uppréttar eða örlítið skástæðar greinar, árssprotar rauðir. Afbrigðið er heldur minna og fíngerðara en aðaltegundin, greinar stíft uppréttar og mjög grannar.
     
Lýsing   Laufin 3-flipótt, oft djúpflipótt, myndar 3 smálauf á kröftugum greinum. Jaðrar með tennur sem vita fram á við. Blómin græn.
     
Heimkynni   Alaska - NV USA (Afbrigðið er útbreitt í skógum Suðaustur-Alaska og Bresku Kólumbíu, meðfram ströndum og á flóðasvæðum ánna).
     
Jarðvegur   Hlýr, frjór, léttur en þó rakaheldinn.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   1,2, http://en.wikipedia.org
     
Fjölgun   Sáning strax og fræin hafa náð fullum þroska eða eftir að þau hafa verið forkæld. Fræ eru í tvívængjuðum, hárlausum hnotum.
     
Notkun/nytjar   Stakstæð tré, í þyrpingar, í beð.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur sem sáð var til 1992 og gróðursettar í beð 1999 og 2001. Hefur reynst þokkalega vel í garðinum, kelur örlítið en vex að öðru leyti án áfalla.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Gljáhlynur
Gljáhlynur
Gljáhlynur
Gljáhlynur
Gljáhlynur
Gljáhlynur
Gljáhlynur
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is