Málsháttur
Lengi býr að fyrstu gerð.
Rosa 'Adelaide Hoodless'
Ættkvísl   Rosa
     
Nafn  
     
Höfundur  
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Adelaide Hoodless'
     
Höf.   (Marshall 1973) Kanada.
     
Íslenskt nafn  
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Sumargræn runnarós.
     
Kjörlendi   Sólríkur vaxtarstaður og í skjóli.
     
Blómlitur   Fagurrauður.
     
Blómgunartími   Ágúst-september.
     
Hæð   100 -150 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   'Adelaide Hoodless' er klasablómstrandi runnarós, er 150 til 185 sm há og álíka breið, glæsilegur, blómviljugur runni.
     
Lýsing   Henry H. Marshall kynbætti og ræktað upp yrkið (1973) og Canadian Ornamental Plant Foundation kom því á framfæri. Foreldrar yrkisins eru (fræ) ‘Fire King’ (floribunda, Meilland 1959) og frjó af ‘J.W.Fargo’ × ‘Assiniboine’ 'Adelaide Hoodless' er floribunda rós/blómin í 5-10 blóma klasa og runninn tilheyrir svonefndum Parkland rósum, er frá Kanada, en þeir runnar eru þéttvaxnir, harðgerðir, hafa viðnámsþrótt gegn sjúkdómum og lítið þarf að klippa þá að vorinu. 'Adelaide Hoodless' er með hálffyllt, lítið eitt ilmandi, ljós rauð/djúp bleik blóm, um 7 sm breið, sem springa út bæði um hásumarið og að haustinu. Ilma lítið. Blómin koma í lotum. Laufin eru glansandi, milligræn. Runninn þéttvaxinn, vöxturinn kröftugur, verður allt að um 1 m hár og breiður. Hann er harðgerður og mjög þolinn gagnvart sjúkdómum svo sem mjölsvepp og ryðsvepp, en er viðkvæmur fyrir svartroti. Þarf sólríkur vaxarstað, sendinn, leirkenndan jarðveg, miðlungsrakan. Þarf lítla umhirðu og klippingu.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Sendinn, leirkenndur, miðlungi rakur.
     
Sjúkdómar   Viðkvæm fyrir svartroti.
     
Harka  
     
Heimildir   http://www.backyardgardener.com, http://www.elkorose.com/ewhrab.html, http://www.helpmefind.com, http://www.horticlick.com, http://www.marthastewart.com, davesgarden.com/guides/pf/go/65197/#b
     
Fjölgun   Sumar-, síðsumar-, vetrargræðlingar, ágræðsla, brum ágræðsla, sveiggræðsla.
     
Notkun/nytjar   Á sólríkum stað í skjóli.
     
Reynsla   Ein planta hefur verið reynd í Lystigarðinum, lifði 3 ár.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is