Sigfús Daðason - Vængjasláttur
Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.

Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!

Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.

Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.

Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.



Scrophularia nodosa
Ættkvísl   Scrophularia
     
Nafn   nodosa
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Hnúðrót
     
Ætt   Grímublómaætt (Scrophulariaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Græmn, efri vörin purpurabrún.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   70-100 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Fjölær jurt, stönglar allt að 150 sm há, kantaðir, sjaldan með vængi.
     
Lýsing   Lauf allt að 12 x 7 sm, egglaga til egglaga-aflöng, hjartalaga til þverstýfð við grunninn, hvassydd, sagtennt. Blómleggir 2-3 x lengri en bikarinn, króna 7-10 mm, græn, efri vörin purpurabrún, gervifræflar öfugegglaga. Fræhýði egglaga, allt að 5 mm.
     
Heimkynni   Evrópa, Asía.
     
Jarðvegur   Djúpur, frjór.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   7
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Skipting, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í beð með fjölærum jurtum.
     
Reynsla   Gömul lækningajurt og fyrst og fremst ræktuð í því skyni. Hefur lifað mörg ár í Lystigarðinum, sáir sér.
     
Yrki og undirteg.   'Variegata' er yrki með hvítflekkóttum blöðum, sem rækta má sem skrautjurt.
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is