Þuríður Guðmundsdóttir - Rætur
Ég geng um skrúðgarða borgar
og blómin horfa á mig
litríkum framandi augum
og ilmur þeirra er alltaf nýr

Í fjarska situr fölblá gleymmérei
á fötum lítils barns

Því blágresi, holtasóley og steinbrjótur
voru blóm bernsku minnar

Og rætur þeirra
verða alltaf mínar

Santolina chamaecyparissus
Ættkvísl   Santolina
     
Nafn   chamaecyparissus
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Grábuski.
     
Ætt   Körfublómaætt (Asteraceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Sígrænn runni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Dökkgulur.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   10-50 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Stönglar 10-50 sm, uppréttir eða uppsveigðir, þétt hvít-lóhærðir í fyrstu, sprotar með blómum oftast ógreindir, ekki með lauf neðan við körfurnar, blómlausir sprotar græn- til grálóhærðir.
     
Lýsing   Lauf 2,5-4 x 0,3 sm, mörg saman, þétt, kambskipt-tennt til fjaðurskipt, blaðflipar í pörum, allt að 2 mm, grá- til hvítlóhærð. Körfurnar stakar, 1,5-2 sm í þvermál, hnöttóttar, á grönnum, allt að 15 sm löngum blómskipunarlegg. Reifar oftast lóhærðar, lensulaga til egglaga, með kjöl, innri reifar með bogadregna, tannflipótta jaðra og himnukenndan odd. Smáblómin djúpgul.
     
Heimkynni   V & M Miðjarðarhafssvæðið.
     
Jarðvegur   Léttur, framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   7
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Græðlingar, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í sígræn beð, í kanta, með sumarblómum í beð.
     
Reynsla   Þolir ekki frost og því verður að geyma móðurplöntur í upphituðu gróðurhúsi og fjölga þeim síðan með græðlingum eða sáningu. Auðvelt að forma með klippingu.
     
Yrki og undirteg.   Fjöldi yrkja í ræktun erlendis og stundum má fá fræ af Þeim t.d. frá Jelitto, Thompson & Morgan og fleirum.
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is