Þuríður Guðmundsdóttir - Rætur
Ég geng um skrúðgarða borgar
og blómin horfa á mig
litríkum framandi augum
og ilmur þeirra er alltaf nýr

Í fjarska situr fölblá gleymmérei
á fötum lítils barns

Því blágresi, holtasóley og steinbrjótur
voru blóm bernsku minnar

Og rætur þeirra
verða alltaf mínar

Platystemon californicus
Ættkvísl   Platystemon
     
Nafn   californicus
     
Höfundur   Benth.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Gulslikja
     
Ætt   Draumsóleyjarætt (Papaveraceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Einær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   ljósgulur
     
Blómgunartími   Júlí-september.
     
Hæð   15-30 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Einær jurt, mjög breytileg. Stönglar allt að 30 sm, uppréttir eða útafliggjandi, greinast við grunninn, greinar ekki aðlægar, útstæðar, hárlausar. Lauf allt að 7,5 sm, næstum legglaus, gagnstæð eða í hvirfingum, bandlaga til aflöng-lensulaga, heilrend, lykja um stöngulinn neðst, þéttdúnhærð, beinstrengjótt.
     
Lýsing   Blómin endastæð, stök, allt að 2,5 sm í þvermál, gul eða gul og hvít. Blómskipunarleggir allt að 7,5 sm, axlastæðir, stinnir. Bikarblöð 3, egglaga. Krónublöð 6, skammæ, fræflar margir, misstórir. Aldin úr 6-25 frævum, klofna í hólf með einu fræi.
     
Heimkynni   N Ameríka (Kalifornía til Arizona).
     
Jarðvegur   Sendinn, meðalfrjór, framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   8
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Sáning.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, í ker.
     
Reynsla   Hefur verið reynd hérlendis sem sumarblóm og hefur reynst vel.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is