Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Phlomis pratensis
Ættkvísl   Phlomis
     
Nafn   pratensis
     
Höfundur   Karel & Kir.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Engjaljós
     
Ætt   Varablómaætt (Lamiaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól, skjól.
     
Blómlitur   Purpura.
     
Blómgunartími   Ágúst-september.
     
Hæð   60-100 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Stönglar ógreindir, þéttloðnir. Lauf aflöng, hjartalaga, bogtennt og með legg.
     
Lýsing   Blómin í margblóma krönsum. Krónan með purpura slikju.
     
Heimkynni   Síbería.
     
Jarðvegur   Léttur, frjór, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Skipting, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í beð með fjölærum plöntum.
     
Reynsla   Þarf stuðning og uppbindingu.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is