Halldór Kiljan Laxness , Bráðum kemur betri tíð.
Bráðum kemur betri tíð með blóm í haga,
sæta langa sumardaga.

Incarvillea delavayi
Ættkvísl   Incarvillea
     
Nafn   delavayi
     
Höfundur   Bur. & Franch.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Fjaðraglóð
     
Ætt   Lúðurtrésætt (Bignoniaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól, hálfskuggi.
     
Blómlitur   Purpuralit með gulum blettum.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   15-30 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Fjaðraglóð
Vaxtarlag   Fjölær jurt með enga stöngla.
     
Lýsing   Laufblöðin hvirfingablöð, neðri laufin fjaðurskipt, efri laufin lýrulaga-fjaðurskert, 8-25 sm, flipar 6-11 pör, 1,3-5 × 0,5-2,5 sm, lensulaga, grunnur bogadreginn, fleyglaga eða legghlaupin, oddur snubbóttur eða hvassyddur, jaðar bogtenntur, æðar stundum smádúnhærðar. Endaflipinn 1,5-3,5 × 0,9-2,5 sm, oddbaugóttur til öfugegglaga, grunnur fleyglaga. Blómskipunin lík klasa, 2-10-blóma, blómskipunarleggur 15-30 sm, lengri þegar aldinið er þroskað, stoðblöð 1 sm, bandlaga. Blómleggur 0,5-1,5 sm, smástoðblöð 0,5 sm. Bikarpípa allt að 1,6 sm, flipar allt að 6,5 × 0,7 sm. Krónupípan allt að 6 sm, purpura og gul á ytra borði, gul með purpura rákir á því innra. Flipar allt að 3 × 2,6 sm breið, purpura, hringlaga, oddur framjaðraður, með kirtla. Fræhýði allt að 7,3 × 1,5 sm, leður- eða trékennd, ferhyrnd, bogin, oddur langdreginn. Fræ allt að 5 × 3,75 mm, egglaga, með vængi, vængur 1 mm. blóm í blómmörgum klasa, löng fjaðurskipt laufblöð
     
Heimkynni   Kína.
     
Jarðvegur   Meðalrakur, góður moldarjarðvegur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Skipting, sáning. Blómstra yfirleitt ekki fyrr en á 3ja ári. Safnar forðanæringu í rætur líkt og dahlíur.
     
Notkun/nytjar   Í skýld beð.
     
Reynsla   Viðkvæm en getur lifað sunnan undir húsvegg. Að öðrum kosti að hafa hana í köldum gróðurskála eða sólreit. Gróðursetja fremur djúpt eða á 10-15 sm dýpi.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Fjaðraglóð
Fjaðraglóð
Fjaðraglóð
Fjaðraglóð
Fjaðraglóð
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is