Þuríður Guðmundsdóttir - Rætur
Ég geng um skrúðgarða borgar
og blómin horfa á mig
litríkum framandi augum
og ilmur þeirra er alltaf nýr

Í fjarska situr fölblá gleymmérei
á fötum lítils barns

Því blágresi, holtasóley og steinbrjótur
voru blóm bernsku minnar

Og rætur þeirra
verða alltaf mínar

Draba aizoides
Ættkvísl   Draba
     
Nafn   aizoides
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Garðavorblóm
     
Ætt   Krossblómaætt (Brassicaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Fagurgulur.
     
Blómgunartími   Apríl-maí.
     
Hæð   5-10 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Þýfð, fjölær jurt, 5-10 sm há. Lauf allt að 1,5 mm breið í 35 mm breiðum blaðhvirfingum, mjóbandlaga, gárótt, ± innsveigð, broddydd, jaðrar ögn randhærðir.
     
Lýsing   Blómstönglar allt að 10 sm, hárlausir, glansandi, uppréttir. Blóm 4-18, krónublöð 4-6 mm, gul, öfugegglaga, jafnlöng og fræflarnir. Skálpar 6-12 mm, oddbaugóttir, hliðflatir, hárlausir. Mjög breytileg tegund.
     
Heimkynni   M & S Evrópa(fjöll), Bretlandseyjar.
     
Jarðvegur   Léttur, sendinn, framræstur.
     
Sjúkdómar   Engir.
     
Harka   4
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Skipting, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, í kanta, í hleðslur.
     
Reynsla   Ekki í Lystigarðinum 2015, en hefur verið sáð.
     
Yrki og undirteg.   Yrkið 'Compacta' er þétt í vextinum.
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is