Jón Thoroddsen - Barmahlíð

Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!

Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.

Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?

Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali!


Corydalis ochroleuca
Ættkvísl   Corydalis
     
Nafn   ochroleuca
     
Höfundur   Koch.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Gulspori
     
Ætt   Fumariaceae
     
Samheiti  
     
Lífsform   fjölær
     
Kjörlendi   sól, hálfskuggi
     
Blómlitur   fölgulur
     
Blómgunartími   júlí-ágúst
     
Hæð   0.25-0.45m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Gulspori
Vaxtarlag   lík C. lutea
     
Lýsing   blóm að 1,5cm fölgul, lauf fíngerðari en á hanasporanum og sporinn beygjist mun ákveðnar niður á við
     
Heimkynni   SA Evrópa
     
Jarðvegur   fr. rakur, nægjusöm
     
Sjúkdómar   engir
     
Harka   5
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   skipting, sáning (fræið spírar seint eftir geymslu)
     
Notkun/nytjar   steinhæðir, Þekju, undirgróður, beð
     
Reynsla   Þrífst vel bæði sunnanlands og norðan
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Gulspori
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is