Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Anthyllis vulneraria
Ættkvísl   Anthyllis
     
Nafn   vulneraria
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Gullkollur
     
Ætt   Fabaceae
     
Samheiti  
     
Lífsform   einær eða skammlífur fjölæringur
     
Kjörlendi   sól
     
Blómlitur   gulur með brúnum eða rauðbr. blett.
     
Blómgunartími  
     
Hæð   0.15-0.4m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Gullkollur
Vaxtarlag  
     
Lýsing   blómin í Þéttum kolli, gráloðin bikarblöð, lauf fjöðruð með fáum hliðarblöðum og stóru endablaði
     
Heimkynni   Ísland, Evrópa, N Afríka, V Asía
     
Jarðvegur   léttur, framræstur
     
Sjúkdómar   engir
     
Harka   7
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   sáning
     
Notkun/nytjar   steinhæð
     
Reynsla   vex einkum á SV landi
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Gullkollur
Gullkollur
Gullkollur
Gullkollur
Gullkollur
Gullkollur
Gullkollur
Gullkollur
Gullkollur
Gullkollur
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is