Jón Thoroddsen - Barmahlíð

Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!

Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.

Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?

Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali!


Viola sororaria
Ættkvísl   Viola
     
Nafn   sororaria
     
Höfundur   Willd.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Systrafjóla
     
Ætt   Violaceae
     
Samheiti  
     
Lífsform   fjölær
     
Kjörlendi   sól
     
Blómlitur   dökkfjólublá/hvítt auga
     
Blómgunartími   apríl-maí
     
Hæð   0.1-0.15m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Lágvaxin tegund með greinóttan jarðstöngul
     
Lýsing   Blóm stök á stöngulendum, undirsætin, fimmdeild, hýðisaldin. Blöð stór nýrlaga - egglaga
     
Heimkynni   A N Ameríka
     
Jarðvegur   léttur, framræstur
     
Sjúkdómar  
     
Harka   4
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   skipting, sáning (stratificera fyrir sáningu)
     
Notkun/nytjar   steinhæðir, beð, breiður
     
Reynsla   Meðalharðger-harðger, lítt reynd hérlendis
     
Yrki og undirteg.   'Albiflora', 'Freckles' ofl.
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is