Jón Thoroddsen - Barmahlíð

Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!

Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.

Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?

Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali!


Trifolium rubens
Ættkvísl   Trifolium
     
Nafn   rubens
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Purpurasmári
     
Ætt   Fabaceae
     
Samheiti   ekki í RHS ath. betur
     
Lífsform   fjölær
     
Kjörlendi   sól
     
Blómlitur   dökkrósrauður
     
Blómgunartími   ágúst-september
     
Hæð   0.5-0.7m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Purpurasmári
Vaxtarlag   Uppréttir, beinvaxnir blómstönglar
     
Lýsing   Blómin í aflöngum fallegum kollum, blöðin þrífingruð, smáblöðin löng og mjó
     
Heimkynni   Alpafjöll
     
Jarðvegur   léttur, framræstur, magur
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir  
     
Fjölgun   skipting, sáning
     
Notkun/nytjar   skrautblómabeð, steinhæðir (skýlda staði)
     
Reynsla   Meðalharger, blómgast ekki í öllu árferði norðanlands
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Purpurasmári
Purpurasmári
Purpurasmári
Purpurasmári
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is