Í morgunsárið - Ragna Sigurðardóttir
Í morgunsárið greiðir hún sér með trékambi. Hægt með föstum
strokum. Vöxturinn er svo mikill að hana kitlar í svörðinn. Hún
strýkur hendinni yfir gróðurinn. Finnur blóm springa út undir
fingurgómunum. Sóleyjar og baldursbrár. Hún leggur kambinn frá
sér. Fer út í garðinn og krýpur. Kippir upp kartöflugrösum. Rótar og
grefur með berum höndum. Djúpt ofan í moldinni finnur hún sætar og
safaríkar appelsínur.
Symphoricarpos albus
Ættkvísl   Symphoricarpos
     
Nafn   albus
     
Höfundur   (L.) Blake.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Snjóber
     
Ætt   Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Hálfskuggi, skuggi.
     
Blómlitur   Hvítur-rósrauður.
     
Blómgunartími   Júlí.
     
Hæð   1-1,3m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Snjóber
Vaxtarlag   uppréttur, marggreindur, grannar fíngerðar greinar, rótarskot, árssprotar grannir, rauðbrúnir aðeins hærðir eða hárlausir, börkur flagnar af í ræmum
     
Lýsing   Blöðin gagnstæð, sporlaga til breiðegglaga, heilrennd og stundum sepótt eða fátennt fremst, sérstaklega á Þróttmiklum srotum, fremur þunn, dökkgræn á efra borði og hárlaus, ljósari og dálítið hærð á því neðra, 1,5-5cm að lengd og 1,5-2,5cm á breiidd og ávöl í báða enda. Blómin bjöllulaga, 6mm að lengd hærð að innanverðu í stuttum klösum á endum árssprota og líka úr blaðöxlum, aldin hvít steinaldin 6-15mm í þvermál með 2 fræjum, hanga lengi plöntunum þar sem fulgar líta ekki við þeim, gulleitir haustlitir, brum ávöl 1,5mm að lengd með mörgum brumhlífarblöðum
     
Heimkynni   N Ameríka, Kanada
     
Jarðvegur   meðalþurr, rakur
     
Sjúkdómar  
     
Harka   3
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   sumar og vetrargræðlingar (inni að vori), vorsáning, rótarskot
     
Notkun/nytjar   ókl.limgerði, þyrpingar, stakstæð, beð
     
Reynsla   Harðger og vindþolin, þarf að snyrta reglulega. Má klippa alveg niður. Skuggþolin tegund og því mikið notuð til uppfyllingar í trjábeð
     
Yrki og undirteg.   Symphoricarpos albus var. laevigatus (Fern.) S.F. Blake verður heldur hávaxnari eða allt að 2m á hæð með uppréttar hárlausar greinar, mikið greinóttar, blöð allt að 3-7,5cm að lengd og hárlaus og berin eru bæði stærri og fleiri en á aðaltegundinni (SA Alaska - Kalifornía)
     
Útbreiðsla  
     
Snjóber
Snjóber
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is