Jón Thoroddsen - Barmahlíð

Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!

Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.

Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?

Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali!


Aquilegia formosa
Ættkvísl   Aquilegia
     
Nafn   formosa
     
Höfundur   Fisch.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Glóðarvatnsberi
     
Ætt   Ranunculaceae
     
Samheiti  
     
Lífsform   fjölær
     
Kjörlendi   sól, hálfskuggi
     
Blómlitur   ljósrauður / ljósgulur
     
Blómgunartími   júlí
     
Hæð   0.7-0.9m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Glóðarvatnsberi
Vaxtarlag   breytileg tegund með stóra gisna blómskipan
     
Lýsing   blómin fremur lítil m. beina dálítið útstæða spora, Þrískipt blöð
     
Heimkynni   N & V N Ameríka, Alaska
     
Jarðvegur   lífrænn, mrakur, framræstur
     
Sjúkdómar  
     
Harka   3
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   varleg skipting fyrir eða eftir blómgun, sáning
     
Notkun/nytjar   blómaengi, beð, undirgróður
     
Reynsla   Harðger, lítið ræktuð utan grasagarða enn sem komið er.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Glóðarvatnsberi
Glóðarvatnsberi
Glóðarvatnsberi
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is