Jón Helgason - úr ljóðinu Á Rauðsgili
Hugrökk teygist á háum legg
hvönnin fram yfir gljúfravegg,
dumbrauðu höfði um dægrin ljós
drúpir hin vota engjarós.


Sorbus aucuparia
Ættkvísl   Sorbus
     
Nafn   aucuparia
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Reyniviður
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi tré.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Rjómahvítur.
     
Blómgunartími   Júní.
     
Hæð   10-14 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Reyniviður
Vaxtarlag   Lítið eða meðalstórt tré, yfirleitt einstofna með hvelfda krónu. Verður 60-140 ára eftir aðstæðum á hverjum stað. Greinar gráar og uppréttar á ungum trjám en síðar útstæðar. Árssprotar grábrúnir og hærðir í fyrstu en verða nær hárlausir með aldrinum. Börkur þunnur, sléttur, ljósgrár-dökkgrár með láréttum barkaropum og lyktar illa. Brumin dökk, meira eða minna loðin, sérstaklega á endum bruma. Endabrum áberandi stærst og loðnast. Tré af íslenskum uppruna eru að jafnaði með uppstæðar greinar.
     
Lýsing   Laufin stór, stakfjöðruð, 10-20 sm á lengd með 6-8 smáblaðapör. Endalaufið er ekki áberandi stærra en hin. Smáblöð 2-6 sm á lengd, mattgræn og hárlaus á efra borði en gishærð til dúnhærð og grágræn á því neðra, lang-lenulaga, ydd og sagtennt. Blómin rjómahvít í stórum hálfsveipum. Blómin um 10 mm í þvermál, þefill, með 5 þríhyrnd, hvíthærð bikarblöð, fimm krónublöð og marga fræfla sem eru jafnlangir krónublöðum. Ein fræva í lítillega hærðu egglegi með 3-4 stílum. Aldin rauðgul, rauð eða dökkrauð, kúlulaga, 8-10 mm í þvermál. Fræ oddbaugótt, ljósbrún og um 4 mm á lengd fullþroskað. Gulir eða rauðbrúnir og jafnvel rauðir haustlitir mismunandi áberandi frá ári til árs.
     
Heimkynni   Evrópa - L. Asía, Síbería.
     
Jarðvegur   Djúpur, frjór, meðalrakur.
     
Sjúkdómar   Rreyniáta (Cytispora rubescens).
     
Harka   2
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   Haustsáning, forkælið fræin, sumargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Skjólbelti, í þyrpingar, sem stakstæð tré, í raðir og jafnvel í limgerði, verður 60-120 ára.
     
Reynsla   Harðgert tré, þarf mikinn áburð. Grisja þarf krónuna, klippa rótarskot. Vex villtur hér og þar um landið. Mjög stórt útbreiðslusvæði um tempraða belti Evrasíu og Litlu-Asíu.
     
Yrki og undirteg.   Fjölmörg garðaafbrigði eða yrki, nokkur þeirra í ræktun í garðinum. Yrki t.d.: 'Edulis' er með æt ber, ekki beisk á bragðið og því hentugur í sultur og hlaup, hraðvaxta og mjög harðgert yrki. Stærri lauf og breiðari smálauf en á aðaltegund, tennt aðallega í endann. Uppruni frá því um 1800. 'Fastigiata' er hægvaxta runni eða lágvaxið tré, nær súlulaga með uppréttum greinum (stofni). Verður kannski ekki nema 4-5 m hérlendis. Lauf stór með 11-15 dökkgrænum smáblöðum. Aldin gljáandi rauð, stór og fjölmörg saman. AM 1924. 'Dirkenii' - lauf gul á unga aldri, en verða síðar gulgræn. Fyrst á markaði um 1880. 'Fastigiata' er með stíf upprétt króna, fremur hægvaxta. 'Pendula' er með slútandi/hangandi greinar. 'Rossica Major' - eitt allra besta yrkið og víða notað sem götutré erlendis. Uppréttur vaxtarlag - endanleg hæð um 10 m. 'Xanthocarpa' er með skærgul aldin.
     
Útbreiðsla  
     
Reyniviður
Reyniviður
Reyniviður
Reyniviður
Reyniviður
Reyniviður
Reyniviður
Reyniviður
Reyniviður
Reyniviður
Reyniviður
Reyniviður
Reyniviður
Reyniviður
Reyniviður
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is