Jón Thoroddsen - Barmahlíð

Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!

Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.

Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?

Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali!


Solidago cutleri
Ættkvísl   Solidago
     
Nafn   cutleri
     
Höfundur   Fern.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Fjallagullhrís
     
Ætt   Asteraceae
     
Samheiti  
     
Lífsform   fjölær
     
Kjörlendi   sól
     
Blómlitur   gulur
     
Blómgunartími   ágúst-september
     
Hæð   0.2-0.5m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Fjallagullhrís
Vaxtarlag  
     
Lýsing   blómstönglar eru með stuttan beinan topp af tiltölulega stórum körfum laufblöðin eru flest í hvirfingu, hárlaus og gljáandi, sagtennt
     
Heimkynni   NA N Ameríka
     
Jarðvegur   meðalfrjór, framræstur
     
Sjúkdómar  
     
Harka   4
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   skipting, sáning
     
Notkun/nytjar   steinhæðir, fjölæringabeð, breiður
     
Reynsla   Harðger, Þrífst vel í LA Syn.: Solidago virgaurea var. alpina
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Fjallagullhrís
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is