Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Silene asterias
Ættkvísl   Silene
     
Nafn   asterias
     
Höfundur   Griseb.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Störnuholurt
     
Ætt   Caryophyllaceae
     
Samheiti   (ath. flora evrópa, ekki í RHS)
     
Lífsform   fjölær
     
Kjörlendi   sól
     
Blómlitur   hárauður
     
Blómgunartími   júlí-ágúst
     
Hæð   0.8-1m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Störnuholurt
Vaxtarlag   uppréttir stinnir sterklegir blaðfáir stönglar
     
Lýsing   mörg blóm í stórum hvelfdum kollum, himnukennd hábl. neðan við blöðin flest í stofnhvirfingu, allstór
     
Heimkynni   Fjöll Balkanskaga
     
Jarðvegur   fremur rakur, frjór
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir  
     
Fjölgun   skipting, sáning
     
Notkun/nytjar   skrautblómabeð
     
Reynsla   Harðger, hefur reynst vel bæði norðan og sunanlands
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Störnuholurt
Störnuholurt
Störnuholurt
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is