Gott er að leggjast í lyngið, sjá lauf glóa, finna kvik fjaðurmjúk atlot þess, fagna í fegurð jarðar meðan rauð og lág sólin lækkar og lyngbreiðan er ilmgrænt haf sem ber þig að hljóðri húmströnd og hylur þig gleymsku.