Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.
Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.
Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.
Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.
|
Ættkvísl |
|
Sambucus |
|
|
|
Nafn |
|
racemosa |
|
|
|
Höfundur |
|
L. |
|
|
|
Ssp./var |
|
|
|
|
|
Höfundur undirteg. |
|
|
|
|
|
Yrki form |
|
|
|
|
|
Höf. |
|
|
|
|
|
Íslenskt nafn |
|
Rauðyllir |
|
|
|
Ætt |
|
Geitblaðsætt (Caprifoliaceae). |
|
|
|
Samheiti |
|
|
|
|
|
Lífsform |
|
Lauffellandi runni. |
|
|
|
Kjörlendi |
|
Hálfskuggi. |
|
|
|
Blómlitur |
|
Fölgrænn-gulhvítur. |
|
|
|
Blómgunartími |
|
Júní-júlí. |
|
|
|
Hæð |
|
2-3,5 m |
|
|
|
Vaxtarhraði |
|
|
|
|
|
|
|
|
Vaxtarlag |
|
Uppréttar grófgerðar greinar, fyrirferðarmikill, hvítur mergur. |
|
|
|
Lýsing |
|
Líkur dúnylli en þekkist meðal annars á hárlausum blómstilkum, árssprotum og blöðum, smáblöð oftast 5, rauð ber um 4-5 mm í þvermál. |
|
|
|
Heimkynni |
|
M Evrópa, L Asía, Síbería, V Asía. |
|
|
|
Jarðvegur |
|
Meðalrakur, frjór, djúpur. |
|
|
|
Sjúkdómar |
|
|
|
|
|
Harka |
|
4 |
|
|
|
Heimildir |
|
= 1 |
|
|
|
Fjölgun |
|
Sumar- og vetrargræðlingar, sáning. |
|
|
|
Notkun/nytjar |
|
Í þyrpingar, sem stakstæður runni. |
|
|
|
Reynsla |
|
Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni sem sáð var til 1982 og gróðusett í beð 1984 og önnur sem kom úr gróðrarstöð 1988 og gróðursett í beð 1989. Sú síðarnefnda hefur kalið talsvert gegnum árin. Meðalharðgerð planta, sem laufgast mjög snemma á vorin og því viðkvæmur fyrir vorhretum, þarf gott skjól. |
|
|
|
Yrki og undirteg. |
|
Mikill fjöldi yrkja í ræktun erlendis. 'Laciniata' og 'Plumosa' með skiptu laufi eru til í garðinum og þrífast þokkalega. |
|
|
|
Útbreiðsla |
|
|
|
|
|
|
|